Fara í efni

Alexandra Jóhannesdóttir tekur við sem bæjarstjóri Suðurnesjabæjar

Alexandra Jóhannesdóttir tekur við sem bæjarstjóri Suðurnesjabæjar

Í dag mánudaginn 10. ágúst tók Alexandra Jóhannesdóttir formlega við starfi bæjarstjóra Suðurnesjabæjar. Ráðning hennar var samþykkt á fundi bæjarstjórnar þann 15. júlí síðastliðinn.

 

Alexandra tekur við af Árna Gísla Árnasyni, sem hefur verið starfandi bæjarstjóri tímabundið undanfarna tvo mánuði. Árni Gísli tók við starfinu af Magnúsi Stefánssyni, sem lét af störfum sem bæjarstjóri fyrr á árinu eftir tæplega 14 ára farsælt starf í þágu sveitarfélagsins. Suðurnesjabær færir þeim Magnúsi og Árna Gísla bestu þakkir fyrir þeirra framlag og störf í þágu sveitarfélagsins. Árni Gísli fer aftur til fyrri starfa sem sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasvið Suðurnesjabæjar.

 

Alexandra kemur til Suðurnesjabæjar með átta ára reynslu sem sveitar- og hafnarstjóri á Skagaströnd, auk víðtækrar reynslu af stjórnsýslu og samfélagsuppbyggingu. Hún hlakkar til að kynnast íbúum, starfsfólki og atvinnulífi sveitarfélagsins á næstu vikum og til að vinna með samfélaginu að sameiginlegri framtíðarsýn fyrir Suðurnesjabæ.

 

„Í dag hefst nýr kafli. Ég mun leggja mig alla fram fyrir Suðurnesjabæ og hlakka til að vinna með íbúum, starfsfólki og kjörnum fulltrúum að þeim fjölbreyttu verkefnum sem fram undan eru. Framtíðin er björt í fallega bænum okkar,“ sagði Alexandra af þessu tilefni.

 

Suðurnesjabær býður Alexöndru Jóhannesdóttur hjartanlega velkomna til starfa og óskar henni velfarnaðar í nýju hlutverki.